Samþykktir fyrir félag til almannaheilla

Mynd: Borgþór Magnússon

Samþykktir afgreiddar á aðalfundi 21. febrúar 2023

1. gr.

Félagið heitir Vinir íslenskrar náttúru, skammstafað VÍN.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að fjalla um náttúruverndarmál líðandi stundar. Ísland er virkur
þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um náttúruvernd, vernd líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúruauðlinda. Skyldur þjóðarinnar á þessu sviði eru margvíslegar, sem endurspeglast í íslenskri löggjöf. Starfsemi VÍN tekur mið af þessum alþjóðlegu skuldbindingum og íslenskri löggjöf um náttúruverndarmál í umfjöllun sinni. VÍN leggur áherslu á að veita aðgang að faglegu og vönduðu efni sem byggt er á vísindalegum grunni og kynna þau náttúruverndarmál sem efst eru á baugi hverju sinni.

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda fundi, skipuleggja aðgerðir til verndar íslenskri náttúru og miðla upplýsingum í fjölmiðlum, á vef VÍN og veraldarvefnum. Veittar verða umsagnir eftir atvikum, m.a. um áætlanir, frumvörp til laga og reglugerðir stjórnvalda er lúta að náttúruvernd.

4. gr.

Félagið leggur áherslu á að koma í veg fyrir skaðleg áhrif ágengra og framandi tegunda í íslenskri náttúru; neikvæð áhrif þeirra á lífríki, menningarminjar, jarðminjar og ásýnd landsins og mótar tillögur til úrbóta. Félagið leggur einnig áherslu á önnur verkefni, svo sem endurheimt votlendis, sjókvíaeldi og vindorku. Lögð verður áhersla á að stjórnvöld sinni hinni brýnu þörf fyrir skipulag og framkvæmd áætlana sem varða náttúru landsins og að veita aðhald við framgang þeirra.

Félagið styður aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem og kolefnisbindingu sem ekki hefur neikvæð áhrif á náttúru Íslands. Félagið stuðlar að því að komið sé á framfæri áreiðanlegum upplýsingum um kolefnisbindingu og kolefniseiningar og leggur áherslu á að notuð séu alþjóðleg vottunarkerfi með viðurkenndum kröfum og viðmiðum, sem jafnframt taka tillit til íslenskra aðstæðna.

5. gr.

Vinir íslenskrar náttúru er félag til almannaheilla og ekki rekið í hagnaðarskyni. Aðild að félaginu er öllum opin. Engin félagsgjöld verða innheimt, en félagið aflar rekstrarfjár með styrkjum og með frjálsum framlögum frá einstaklingum, fyrirtækjum o. fl. Meginútgjöld eru rekstur vefs félagsins og umsjón hans, auglýsingar og hlutalaun fyrir fasta rekstrarþætti. Meirihluti stjórnar ritar firma en formaður, varaformaður og gjaldkeri geta einir haft prókúru fyrir félagið.

6. gr.

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

7. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. apríl ár hvert og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Rafræn kosning er heimiluð skv. nánari reglum stjórnar. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar lögð fram.
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
6. Önnur mál.

Til almennra félagsfunda skal boða með sama hætti og aðalfundar. 

8. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og einum meðstjórnanda, kjörnum á aðalfundi. Einnig er heimilt að kjósa allt að fjóra varamenn. Hver stjórnarmaður skal kosinn til tveggja ára í senn. Annað árið ganga úr stjórninni tveir stjórnarmenn, en hitt árið þrír stjórnarmenn, það sama á við um varamenn. Skoðunarmenn reikninga eru kosnir til tveggja ára. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Stjórn afgreiðir tillögur um nýja félaga. Komi til ágreinings um afgreiðslu innan stjórnar eða á milli stjórnar og umsækjanda má skjóta málinu til félagsfundar.

Ákvæði til bráðabirgða: Eftir fyrstu tvö ár í stjórn skulu tveir stjórnarmenn ganga úr stjórn en hinir þrír geta setið eitt ár í viðbót. Eftir það gildir ákvæði laganna.

9. gr.

Reikningsár er almanaksárið. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir endurskoðanda, skoðunarmann eða trúnaðarmann eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund.

10. gr.

Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings frá félaginu.

11. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.