Morgunblaðið 2. apríl 2023

Jim Ratcliffe áhugasamur um verkefnið

Auðjöf­ur­inn Jim Ratclif­fe er á meðal þeirra sem hafa sýnt áhuga á verk­efni Skóg­rækt­ar­inn­ar sem snýst um að koma á fót viður­kenndu ferli vott­un­ar á bind­ingu kol­efn­is með ný­skóg­rækt. Verk­efnið hef­ur gengið fram­ar von­um og eru um 20 slík í und­ir­bún­ingi á mis­mun­andi stig­um, að sögn Þrast­ar Ey­steins­son­ar skóg­rækt­ar­stjóra.