- Umsögn VÍN um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála (9. desember 2025 og 13 umræður á Alþingi 13. janúar 2026)
- Athugasemdir VÍN við Aðalskipulag Norðurþings, nr. 538/2023 og athugasemdir VÍN við fylgirit aðalskipulagsins – Norðurþing – Flokkun landbúnaðarlands 2024 (9. febrúar 2026)
- Tilmæli frá VÍN vegna kynningar gæðaviðmiða um val á landi til skógræktar. Bréf til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Lands og skógar, 8. apríl 2026.
- Fyrirspurn um skógrækt í landi Víða í Þingeyjarsveit. Bréf til sveitarfélagsins, 12. júní 2026.
- Umsögn VÍN um Aðgerðaráætlun stefnu stjórnvalda um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030.
- Umsögn VÍN um skýrslu um kolefnismarkaði (4. janúar 2025)
- Bréf til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um framkvæmd náttúruverndarlaga varðandi innflutning og dreifingu lifandi framandi lífvera (4. febrúar 2025)
- Umsögn VÍN um tillögu að deiliskipulagi fyrir Ólafsdal í Dalabyggð (13. febrúar 2025)
- Bréf til Vegagerðarinnar um vá sem stafar af lúpínu og skógarkerfli í malarnámum (17. febrúar 2025)
- Umsögn VÍN til Skipulagsstofnunar um umhverfismatsskýrslu um Hagavatnsvirkjun, Bláskógabyggð (31. mars 2025)
- Umsögn VÍN um tillögu til þingsályktunar um þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt (6. apríl 2025)
- Umsögn VÍN um tillögu verkefnisstjórnar 5. áfanga Rammaáætlunar að flokkun tíu vindorkuverkefna (23. apríl 2025)
- Leiðbeiningar um val á landi til skógræktar. Bréf til Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarstofnunar og Minjastofnunar Íslands (20-23 maí 2025)
- Bréf til sveitarstjórna um skipulag skógræktar (4. júní 2025)
- Skógrækt í landi Þverár, Reykjahverfi. Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu, mál nr. 943/2025 (5. ágúst 2025)
- Athugasemdir við endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar, nr. 11/2023 (6. ágúst 2025)
- Matsáætlun vegna skógræktar í landi Varmalækjar, mál nr. 1026/2025 (15. ágúst 2025)
- Umsögn um drög að stefnu um líffræðilega fjölbreytni. Mál nr. S-106/2025 (20. ágúst 2025)
- Umsögn um Leiðbeingar um sjálfbæra skógrækt, frÍST 95:2025 (25. ágúst 2025)
- Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á Laugaseli og Víðum íReykjadal, Þingeyjarsveit (29. september 2025)
- Athugasemdir við greinargerð um aðalskipulag Þingeyjarsveitar 2024-2044, nr. 881/2023 (27. október 2025)
- Umsögn um mál nr. 204/2025. Drög að reglugerð um hvata- og stuðningsverkefni í landgræðslu og skógrækt (5. nóvember 2025)
- Umsögn VÍN um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála (9. desember 2025)
Sjá umsögnina hér.
Uppfærsla aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum | Landnotkun
Sjá bréfið hér.
Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar VÍN, skrifar í Bændablaðið 29. ágúst 2024 (bls. 44).
,,Þeir sem standa fyrir og bera ábyrgð á þessum hernaði gegn náttúru landsins með óheftri skógrækt til kolefnisbindingar verða að svara hvers vegna þeir stunda þessa harkalegu jarðvinnslu. Þeim ætti að vera ljóst að þegar tegundaríku landi með kolefnisríkum jarðvegi er rústað og engar raunverulegar mælingar gerðar á kolefnisbúskap eða úttekt á líffræðilegri fjölbreytni munu skógræktarverkefnin ekki uppfylla þær gæðakröfur sem krafist er til vottunar. Án vottunar verða engar söluhæfar kolefniseiningar framleiddar og landeigandinn fær ekki tekjur af verkefninu.„
Stjórn VÍN sendi bréf til Yggdrasils Carbon með eftirfarandi spurningum:
- Skógræktarsvæðið við Saltvík í Norðurþingi er ríkt mólendi, hvað varðar plöntur og fuglalíf, á tiltölulega kolefnisríkum jarðvegi. Telur Yggdrasill Carbon það samrýmast verndun líffræðilegrar fjölbreytni að rækta skóg með framandi tegundum á slíku svæði?
- Kannaði fyrirtækið möguleikann á að vinna frekar að kolefnisbindingu með endurheimt vistkerfa en með skógrækt með framandi tegundum barrtrjáa – og hvort hægt væri að vinna að vottun verkefnisins sem Gold Standard verkefni frekar en að nota staðla Skógarkolefnisverkefnis? Af hverju var síðari leiðin farin?
- Er fyrirtækinu kunnugt um að skógræktarverkefni sem byggja á einræktun, með sömu trjátegund á sama aldri á stórum svæðum, muni ekki geta fallið undir vottunarramma ESB fyrir kolefnisbindingu?
- Samkvæmt Skógarkolefni 2.0 skal í ræktunaráætlun rökstyðja hvernig stuðlað verður að myndun fjölbreyttra skógarvistkerfa og hvernig staðið verður að eftirliti með því. Telur fyrirtækið að ræktunaráætlun verkefnisins standist þessar kröfur?
- Samkvæmt ofan nefndri greinargerð til sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að nota stafafuru, rússalerki og birki í hlutföllunum 60/30/10. Hafa áhrif verkefnisins á endurkast og ísog sólgeislunar verið metin og hvert jafngildi þeirra breytinga eru í kolefniseiningum?
- Í umfjöllun Morgunblaðsins um verkefnið þann 15. júlí kemur fram að Yggdrasill Carbon muni gera grein fyrir þeirri losun sem fylgir jarðvinnslu í öllum gögnum um verkefnið og við vottun þess. Hvernig hyggst fyrirtækið mæla þessa losun? Ef slíkar mælingar eru hafnar, hverjar eru fyrstu niðurstöður þeirra?
- Í þeim tveimur Skógarkolefnisverkefnum sem fyrirtækið hefur þegar fengið vottuð er því slegið fast fram að „Ræktun skógar á slíku landi auki kolefnisforða sem nemi vexti skógarins en ekki meira en það“. Samt sem áður er reiknað með umtalsverðri kolefnisbindingu í jarðvegi í þessum verkefnum, nánar tiltekið 1,3 tonn CO2 á hektara á ári í 45 ár. Verður áætluð heildarbinding í Saltvík reiknuð á sama hátt og hvernig ætlar fyrirtækið í framtíðinni að sannreyna að þessi binding hafi átt sér stað?
Sjá bréfið hér.
Selfossi 25. júlí 2024
,,Vísað er til fyrri umsagnar Vina íslenskrar náttúru, VÍN um ofangreint málefni.
Hér verður aðeins fjallað um lið 8. Endurheimt fjölbreytts gróðurfars í greinargerð tillögunnarum breytingu á deiliskipulagi fyrir Ólafsdal.“
Sjá alla umsögnina hér.
Umsögn VÍN um Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku).
Umsögn VÍN umTillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi.
Selfossi 29. apríl 2024
,,VÍN leggst alfarið gegn allri skógrækt, með framandi og/eða innlendum tegundum, innan deiliskipulags Ólafsdals og eftir atvikum í öllum Ólafsdalnum. Að öðrum kosti muni landslag og búsetuminjar sem ætlunin er að vernda spillast verulega. Fella verður niður þann kafla sem lítur að deiliskipulagi svæðisins eða endurskoða hann. VÍN telur jafnframt að öll vernd innan svæðisins, sem snýr að náttúrufari, eigi að miða að því að endurheimta náttúruleg vistkerfi og búsetulandslag, t.d. með beit og/eða beitarfriðun, með vernd menningarlandslags tímabilsins 1880-1907 að leiðarljósi.“
Sjá alla umsögnina hér.
Selfossi 15. apríl 2024
,,Stjórn VÍN telur að Minjastofnun eigi ekki samleið með Náttúruverndarstofnun og því beri að draga frumvarpið til baka og vinna nýtt frumvarp um Náttúruverndarstofnun.“
Sjá alla umsögnina hér.
Allar umsagnir
Þann 20. mars ítrekaði VÍN beiðni til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (frá 1. júlí 2023) um upplýsingar frá ráðuneytinu um framkvæmd ákvæða náttúruverndarlaga um innflutning og dreifingu framandi lífvera.
Í bréfinu hvetur VÍN ráðuneytið til að fara að vinna að raunverulegri vernd líffræðilegrar fjölbreytni í landinu í samræmi við lög um náttúruvernd og þá alþjóðasamninga um lífríkisvernd sem Ísland hefur undirgengist. Félagið ítrekar að ekki sé nægilegt að nota jákvæð hugtök án aðgerða í boðuðum áætlunum né að nota kolefnisbindingu og kolefnisjöfnun til að réttlæta notkun ágengra tegunda í skógrækt.
Sjá bæði bréfin hér.
Landvernd og Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi (SUNN) býður VÍN félaga velkomna á örnámskeiðið Náttúruvernd og skipulagsmál – Hvernig höfum við áhrif?, sem fer fram á Zoom fimmtudaginn 4. apríl, 20.00 – 21:30.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, skipulagsfræðingur og stjórnarkona í Landvernd verður með stutta fræðslu um náttúruvernd og skipulagsmál. Að henni lokinni verður veitt rými fyrir spurningar.
Á örnámskeiðinu verður fengist við m.a.
* Hvaða ábyrgð hafa ólíkir aðilar í skipulagsmálum?
* Hvernig virkar mat á umhverfisáhrifum?
* Hvernig er ferlið? Skiptir máli hvenær við komum að málinu?
* Hvað eru aðalskipulag, deiliskipulag, svæðisskipulag?
* Hvernig getum við haft áhrif á skipulagsmál?
Sjá nánar á Facebook hér
Ólafur Gestur Arnalds, prófessor og doktor í jarðvegsfræði og einn af stofnfélögum VÍN, hlaut viðurkenningu Hagþenkis 2023 fyrir bókina Mold ert þú – Jarðvegur og íslensk náttúra.

Í umsögn dómnefndar segir að ritið sé stórvirki á sviði náttúru- og umhverfisfræði, með áherslu á sérstöðu íslensks jarðvegs, þar sem fjallað sé ítarlega um mikilvægi moldarinnar í vistkerfum þurrlendis með ríkulegum gögnum og myndefni.
Í viðtali við Morgunblaðið 7. mars segir Ólafur „að bókin taki fyrir margvísleg vandamál sem steðja að vistkerfum jarðar og af hverju við lokum augunum fyrir þeim. En fyrst og fremst er þetta bók um íslenska mold“.
Stjórn VÍN sendir Ólafi hugheilar hamingjuóskir með þessa frábæru og verðskulduðu viðurkenningu fyrir bókina sem er „kannski að hluta til lífsstarf mitt, falið á síðunum“ eins og Ólafur kemst að orði í Morgunblaðinu.
Selfossi 19. febrúar 2024
Fyrir okkur öll sem unnum náttúru og gæðum landsins er það mikið fagnaðarefni að þessi drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu skuli nú vera komin aftur til kynningar í samráðsgátt, fimm árum frá eftir að lögin um landgræðslu voru samþykkt á Alþingi.
Allt frá því fyrst voru sett lög um skógrækt og varnir gegn uppblæstri lands árið 1907 hefur aldrei verið sett reglugerð um gildandi lög um landgræðslu.
Sjá alla umsögnina hér.
Allar umsagnir
Góðir fundarmenn – ég vil þakka Landvernd fyrir að halda þennan samráðsfund og gefa VÍN tækifæri til að kynna félagið.
Vinir íslenskrar náttúru er félag til almannaheilla og er ekki rekið í hagnaðarskyni. Engin félagsgjöld eru innheimt, en félagið aflar rekstrarfjár með umsóknum um styrki og með frjálsum framlögum frá m.a. einstaklingum og fyrirtækjum.
Félagið styður aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem og þær sem auka kolefnisbindingu sem hafa ekki neikvæð áhrif á náttúru Íslands. Félagið stuðlar að því að komið sé á framfæri áreiðanlegum upplýsingum um kolefnisbindingu og kolefniseiningar og leggur áherslu á að notuð séu alþjóðleg vottunarkerfi með viðurkenndum kröfum og viðmiðum, sem jafnframt taka tillit til íslenskra aðstæðna.
Þrír öldungar, auk mín, Jón Gunnar Ottósson heitinn og Andrés Arnalds stofnuðu óformlegt öldungaráð sumarið 2021 til að freista þess að spyrna á móti stjarnfræðilegum áformum Skógræktarinnar í drögum að Landsáætlun í Skógrækt. Við hóuðum saman um 20 vísindamönnum sem voru sama sinnis og voru ekki sammála áformum Skógræktarinnar. Í kjölfarið mynduðum við bráðabirgðastjórn: Vina íslenskrar náttúru, það er VÍN.
Félagið var formlega stofnað í lok árs 2022. Stofnfélagar voru 41. Þá var komin skipulagsskrá fyrir félagið, búið að opna vefsíðu og félagið hafði þá þegar aflað nokkurra styrkja.
Stofnfélagarnir eru margir núverandi eða fyrrverandi starfsmenn stofnana á sviði líffræði, náttúruverndar og náttúrunýtingar, frá Háskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun, Landgræðslunni og öllum náttúrustofunum á landsbyggðinni. Þá eru í félaginu starfsmenn sveitarfélaga og úr mörgum frjálsum félagasamtökum, bændur og fleira fólk úr landbúnaðargeiranum. Við bendum á að þótt félagar séu úr mörgum áttum þá er hér samankominn hópur sérfræðinga með víðtæka þekkingu og langa reynslu af vinnu og rannsóknum á íslenskri náttúru. Öll höfum við haft áhyggjur af þróun skógræktarmála um alllangan tíma en nokkur korn fylltu mælinn, einkum herferð fyrir kolefnisbindingu og ný landsáætlun í skógrækt og landgræðslu.
Tilgangur félagsins er að fjalla um náttúruverndarmál líðandi stundar með áherslu á skaðleg áhrif ágengra og framandi tegunda í íslenskri náttúru og móta tillögur til úrbóta. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda fundi, skipuleggja aðgerðir til verndar náttúrunni, miðla upplýsingum í fjölmiðlum og á veraldarvefnum um neikvæð áhrif framandi tegunda á lífríki og ásýnd landsins. Veittar eru umsagnir, eftir atvikum um áætlanir, m.a. um frumvörp til laga og reglugerða stjórnvalda.
Nú eru 100 félagar í VÍN.
Það sem einkum sameinar okkur eru hugmyndir um framkvæmd skógræktar í landinu. Við teljum að skógræktaráætlun sé nú þegar og muni að óbreyttu verða raunveruleg ógn við verndun líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Að okkar mati stangast stefna Skógræktarmanna gróflega á við skuldbindingar sem Ísland hefur gengist undir í alþjóðlegum samningum.
Hér eru t.d. notaðar trjátegundir sem hafa reynst ágengar í öðrum löndum og víða er hætt að nota, jafnvel komnar á bannlista. Við teljum að stefnan sé á skjön við almennt viðtekinn skilning og ályktanir í hinu alþjóðlega vísindasamfélagi. Þá teljum við að áform um nytjaskógrækt á láglendi séu svo umfangsmikil að þau muni illa samrýmast öðrum hagsmunum, svo sem verndun vistkerfa og tegunda en einnig öðrum landbúnaðarnytjum en skógrækt. Loks teljum við sumt í útreikningum Skógræktarinnar á kolefnisbindingu með skógrækt vera byggt á afar veikum grunni.
Starfið á síðastliðnu ári
- Þá voru haldnir 6 félagsfundir og 5 stjórnarfundir auk fjölda vinnufunda með stjórnarmönnum og fleirum.
- Greinar félagsmanna í fjölmiðlum voru 17.
- Umsagnir ályktanir og formleg bréf á árinu 2023 voru 14.
- Stjórn VÍN er í bréfasamskiptum við ýmis félög og einstaklinga bæði innanlands og utan um baráttumál okkar. Þar má nefna; Landsamband sumarhúsaeigenda, Vísindafólk á Nýja Sjálandi vegna baráttu þeirra við ágengar framandi tegundir. Í samstarfi við Landvernd héldum við fjarfund með þeim í júní. Samtal og fundir með fulltrúum Rangárþings ytra og viðræður við sveitarstjóra Dalasýslu og sveitarstjórn Grafnings- og Grímsneshreppa. Samskipti við Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök ferðaþjónustunnar, Ólafsdalsfélagið, stjórn Verndarfélags Svartár, svo dæmi séu tekin.
Allnokkrir styrkir hafa borist félaginu það er frá umhverfis,-orku og loftslagsráðuneytinu, sjóðum og einstaklingum, þannig að fjárhagur félagsins stendur styrkum fótum.
Framtíðarsýn
Góðir fundarmenn – hafið í huga að það er aðeins virk náttúruvernd á um 20% af flatarmáli landsins, það er á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru því mörg og mikilvæg, þar sem engin raunveruleg náttúruvernd er á um 80% af flatarmáli landsins.
Samfara fjölgun félagsmanna komu fleiri ábendingar um að takast á við fleiri verkefni á sviði náttúruverndar.
En stjórn VÍN telur brýnast að einbeita starfskröfum að fáum verkefnum – en sinna þeim – þeim mun betur. Knýjandi verkefni er að veita almenningi, fyrirtækjum og stjórnvöldum sem áreiðanlegastar upplýsingar um stöðu vottunarmála um bindingu kolefnis með skógrækt. Efnahagsbandalagið og Norðurlöndin eru í sívaxandi mæli að stemma stigu við grænþvotti fyrirtækja með kaupum á kolefniseiningum, sem ekki hafa fengið raunhæfa vottun til þess bærra aðila. Hér á landi endurspeglast þessi staða í risaáformum um stórtæka framleiðslu á meintum framandi ágengum trjátegundum -undir merkjum kolefnisbindingar.
Enn fremur hvetur stjórnin stjórnvöld og sveitarfélög til að huga að öðrum náttúrumiðuðum lausnum en skógrækt, og á síðasta ári skrifuðum við öllum sveitarfélögum landsins þar að lútandi. Þar er efst á blaði endurheimt votlendis en einnig endurheimt annarra illa farinna vistkerfa vegna ósjálfbærrar nýtingar lands. Æskilegt er að huga að efnahagslegum hvötum fyrir þannig lausnir til dæmis með gjörbreyttu styrkjakerfi landbúnaðarins.
Leitast verður við að fjölga félögum í VÍN og hvetja sem flesta til dáða með greinaskrifum og virkri þátttöku. Við viljum auka samstarf við önnur náttúruverndarfélög. Þannig verður auðveldara að takast á við fleiri mikilvæg náttúruverndarmál svo sem að auka kolefnisbindingu með endurheimt votlendis og stuðla að bættri landnýtingu. Til þessa höfum við sem stendur í VÍN, einfaldlega ekki haft mannafla til að takast á við fjölda annarra brýnna náttúruverndarverkefna sem snúa að áhrifum framandi ágengra tegunda á landi og í sjó og eða að berjast gegn vindorkuverum vítt og breitt um landið.
Takk fyrir
Selfossi 15. desember 2023
VÍN vill benda á að tillagan að landsskipulagsstefnu eins og hún er kynnt þarfnast mikillar ritstýringar bæði til einföldunar og til að auka á skýrleika innihaldsins. Hér verður hins vegar fyrst og fremst komið með ýmsar ábendingar sem varða innihald tillögunnar.
Samkvæmt 10 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á landsskipulagsstefna að samþætta áætlanir opinberra aðila um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra málaflokka sem varða landnotkun og nýtingu og vernd auðlinda haf- og strandsvæða. Stefnan skal útfærð með tilliti til skipulags landnotkunar og haf- og strandsvæða með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Í landsskipulagsstefnu eru sett fram níu lykilviðfangsefni en þar af eru tvö sem fjalla ber um skv. fyrrgreindum lögum, það er miðhálendið og haf-og strandsvæði. Hins vegar er ekki tilgreint hvaða áætlanir er verið að samþætta né á hvaða forsendum. Vikið er að ýmsum áætlunum í kafla um aðgerðaáætlun en samþættingarkafli tillögunnar er því miður ófullkominn, sjá síðar.
Sjá alla umsögnina hér.
Allar umsagnir
Selfoss 5. desember 2023
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins. Tilgangur félagsins er að alla um náttúruverndarmál líðandi stundar. Það leggur áherslu á náttúruvernd, vernd líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúruauðlinda í samræmi við íslenska löggjöf og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Íslendingar hafa skrifað undir.
Sjá allt bréfið hér.
Selfossi 30. nóvember 2023
Eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu þá er það hluti af nýlegum hugmyndum um sameiningar stofnana ríkisins. Sú sameining sem hér er lögð fram hefur nokkuð breyst frá fyrstu tillögum um stóra Náttúruvísindastofnun og verður það ekki rakið frekar hér. Þó má leggja áherslu á að hugmyndir um sameiningar stofnana á almennt að skoða þvert á ráðuneyti og þá fyrst og fremst með það í huga að auka gæði og skilvirkni þeirra stofnana sem á að sameina. Stórar stofnanir eru engin trygging fyrir gæðum, skilvirkni eða fjárhagslegri hagræðingu ef innri starfsemi þeirra er ósamrýmanleg. Frumvarpið sem hér liggur fyrir er eingöngu um sameingu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
Sjá umsögnina hér.
Selfossi 23. nóvember 2023
VÍN tekur undir margt af því sem kemur fram í þingsályktunartillögunni og styður, t.d. eindregið endurheimt náttúrlegra vistkerfa, þ.m.t. endurheimt jarðvegs, birkiskóga og votlendis. VÍN leggur hins vegar sérstaka áherslu á að hvert það verkefni sem snýr að kolefnisbindingu sé ekki í andstöðu við vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Virðingarleysi fyrir íslensku lífríki og náttúru, t.d. með skógrækt í stórum stíl með framandi tegundum, sem sumar eru ágengar, er að verða stórvandamál sem mun aukast á næstu áratugum. Nú þegar er verið að eyðileggja náttúrleg og fullgróin vistkerfi í stórum stíl, svo sem mólendi og votlendi, í nafni kolefnisbindingar.
Sjá umsögnina hér.
Tillaga til þingsályktunar um þjóðarátak í landgræðslu og skógrækt
Allar umsagnir
Látinn er kær félagi og samstarfsmaður í nærri hálfa öld. Margs er að minnast þegar litið er yfir farinn veg samskipta minna við fræði- og forstöðumanninn
Jón Gunnar. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hann fór til starfa á Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Síðan áttum við mikil og góð samskipti í áratugi, báðir forstöðumenn stórra ríkisstofnana í umhverfisgeiranum. Jón Gunnar var alltaf vel liðinn af starfsfólki þeirra stofnana er hann stýrði eins og kom fram í árlegum könnunum um árangur ríkisstofnana.
Hann var hafsjór af fróðleik um náttúru- og umhverfisvernd á innlendum og alþjóðlegum vettvangi og var stálminnugur. Hann var afar ritfær og skrifaði fallegt íslenskt mál og einkar vel skrifandi á ensku.
Þegar við höfðum báðir látið af störfum sökum aldurs sem forstöðumenn ríkisstofnana tókum við höndum saman með Andrési Arnalds við baráttuna
fyrir stóraukinni náttúruvernd hér á landi. Við vorum rækilega studdir af hópi vísindafólks frá mörgum fræðigreinum. Okkur sveið hvað náttúra landsins er
hart leikin af hömlulausri skógrækt og ferðamennsku. Við stofnuðum
því almannaheillafélagið Vinir íslenskrar náttúru, VÍN. Þar var Jón Gunnar fremstur íflokki, harðduglegur og útsjónarsamur með víðtæka reynslu af stjórnsýslu og lögum um náttúruvernd. Þegar hér var komið sögu var hann orðinn mjög veikur og þurfti að fara í erfiðar blóðskiljunarmeðferðir þrjá daga vikunnar. Með einstakri alúð og hjálpsemi Margrétar, eftirlifandi eiginkonu sinnar, tókst honum að vinna langan vinnudag hina fjóra daga vikunnar. Hann tók veikindum sínum af einstæðu hugrekki og þrautseigju. Vinnuafköstin voru ótrúlega mikil og vinnubrögðin öguð og skipulögð. Nú er skarð fyrir skildi hjá okkur félögunum í VÍN þegar foringinn er fallinn frá. Hans skarð verður trauðla fyllt, en við sem eftir stöndum verðum að standa þéttan vörð um íslenska náttúru. Það er hart sótt að henni sem aldrei fyrr og lítið um varnir hjá hinu opinbera. Náttúruvernd er meira og minna munaðarlaus í íslenskri stjórnsýslu.
Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir áralangt heilladrjúgt samstarf og samskipti. Jón Gunnar er einn minnisstæðasti persónuleiki sem ég hef kynnst. Mér var heiður að fá að starfa með honum og eiga við hann samskipti um áratugaskeið.
Margrét, fjölskyldur, ættingjar og vinir kveðja nú mikilhæfan mann með söknuði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna við hann. Ég bið þeim
Guðs blessunar og votta þeim mína dýpstu samúð.
Sveinn Runólfsson.
Sjá einnig Hrafnar fylgdu honum í Heimildinni
Jón Gunnar Ottósson starfandi formaður félagsins lést í nótt. Hann veiktist skyndilega í gærkvöldi og var fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi og þaðan á gjörgæslu í Reykjavík þar sem hann lést. Stjórn VÍN sendir konu hans, Margréti Frímannsdóttur, börnum, barnabörnum og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur.
Hjálmar Waag Árnason verður fulltrúi VÍN á norrænni málstofu um Older people and the climate in the Nordic countries sem haldin verður á Nauthóli þann 27-28. september.
Dagskrá málstofunnar
Skráning á málstofuna
Um verkefnið á vef Environice
Selfossi 1. júlí 2023
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
B.t. Guðlaugs Þór þórðarsonar ráðherra
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er að skoða framkvæmd laga nr. 60/2013 um náttúrvernd, sérstaklega framkvæmdina er varðar XI kafla laganna um innflutning og dreifingu lifandi framandi lífvera. Þar virðist vera pottur brotinn.
Í 63. gr. laganna kemur skýrt fram í 1. mgr. að óheimilt sé að flytja inn eða dreifa lifandi framandi tegundum nema með leyfi og að með umsókn um slíkt leyfi skuli m.a. fylgja “áhættumat”. Í 2. mgr. er undanþága sem nær til tegunda sem þá voru notaðar hér á landi, m.a. í landgræðslu og skógrækt. Þessi undanþága er þó bundin við „innflutning“ tegundanna, en nær ekki til dreifingarinnar, sbr.
orðalag greinarinnar. Dreifing margra tegunda virðist þó vera í fullum gangi án leyfa, sbr. t.d. alaskalúpínu.
Sjá allt bréfið hér.
Þrír VÍN félagar hafa sent umsagnir á Samráðsgátt stjórnvalda um sameiningu 10 stofnana í þrjár stofnanir.
- Umsögn Magnúsar Jónssonar, fyrrverandi veðurstofustjóra
- Umsögn Jóns Gunnars Ottóssonar, fyrrverandi forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands og starfandi formanns VÍN
- Umsögn Kristínar Huldar Sigurðardóttur, fyrrverandi forstöðumanns Minjastofnunar Íslands og Fornleifaverndar ríkisins
Sveinn Runólfsson, formaður stjórnar Vina íslenskrar náttúru (VÍN), hefur ákveðið að draga sig í hlé frá stjórnarstörfum. Með þessu vill Sveinn skapa sér rými til að einbeita sér að ritun bókar um sögu Gunnarsholts sem áætlað er að gefa út í lok þessa árs.
Enginn þekkir sögu höfuðstöðva Sandgræðslunnar, og síðar Landgræðslunnar, betur en Sveinn. Hann bjó í Gunnarsholti í hartnær 70 ár, þar af sem landgræðslustjóri í 44 ár. Stjórn VÍN óskar Sveini alls hins besta við ritun og útgáfu þessa mikla verks. Ennfremur þakkar stjórnin Sveini fyrir frumkvæði að stofnun félagsins og óeigingjarnt starf í þágu þess.
Sveinn verður áfram félagi í VÍN. Hann óskar stjórninni alls velfarnaðar og sendir öllum félögum í VÍN baráttukveðjur. Megi starfsemin vaxa og eflast til verndar náttúru Íslands!
Ný stjórn verður kjörin á aukaaðalfundi í haust. Þangað til mun Jón Gunnar Ottósson varaformaður VÍN vera starfandi formaður. Þóra Ellen Þórhallsdóttir sem var í varastjórn VÍN tekur sæti í bráðabirgðastjórninni sem meðstjórnandi.
Selfossi 6. júní 2023
Vísað er til viðtals við Þröst Eysteinsson, skógræktarstjóra, á vísir.is 23. janúar 2023 þar sem hann boðar „nýja útfluttningsgrein“ með skógrækt erlendra aðila á Íslandi.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Sjá svar Þrastar Eysteinssonar, skógræktarstjóra, hér (PDF skjal)
Selfossi 23. maí 2023
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins.
…
Í Morgunblaðinu 29. mars sl. var sagt frá samstarfsverkefni skógræktarfólks í Dalabyggð sem snýst um að rækta aspir og selja þær til skógræktarfólks eða planta þeim í eigin skógrækt. Verkefnið fékk styrk úr uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Í fréttinni kom fram að fyrirhugað væri að gróðursetja aspirnar við hringveginn sem er aðalvegurinn í sveitarfélaginu. VÍN varar við þessari fyrirhuguðu framkvæmd og hvetur sveitarstjórnina til að beita skipulagsheimildum sínum til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif framkvæmdarinnar. Ræktun stórvaxinna aspa meðfram vegum byrgir útsýni sem er dýrmætt, sérstaklega ferðafólki, í þessu tilviki er spurning um sýn yfir Breiðafjörð og inn dalina.
…
Enn fremur varar VÍN við fyrirhugaðri skógrækt Minjaverndar í Ólafsdal. Skógrækt í dalnum, sama hvað trjátegundir verða notaðar, hún hlýtur þegar fram líða stundir að ógna þessum einstöku menningarminjum og því hefðbundna búsetulandslagi sem er aðall staðarins.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 9. maí 2023
Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) sem eru samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins hafa kynnt sér áform um minjavernd í Ólafsdal í Dalabyggð.
Dalurinn, sem er sérstæð heild, afmarkast á þrjá vegu af 400–500 m háum fjöllum en opnast til norðurs út í Gilsfjörð. Í dalnum eru miklar og sérstæðar minjar frá tíma Bændaskólans í Ólafsdal, sem starfræktur var frá 1880 til 1907, en einnig frá landnámsöld því innarlega í dalnum er skáli sem nýlega hefur verið rannsakaður. Fleiri minjar er þar einnig að finna.
Sjá alla ályktunina hér (PDF skjal)
Selfossi 4. maí 2023
Vinum íslenskrar náttúru bárust nýlega upplýsingar um að hafnar væru framkvæmdir á vegum Minjaverndar, félags í eigu ríkisins (38,27%), Reykjavíkurborgar (38,27%) og Minja, sjálfseignarstofnunar (23,46%), til að undirbúa skógrækt í Ólafsdal í Dölum. Verkefnið er langt komið, búið að girða af land, breyta deiliskipulagi og fá vilyrði fyrir framkvæmdaleyfi. Þetta hefur gerst þrátt fyrir harðorð mótmæli Ólafsdalsfélagsins, Fornleifastofnunar Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Minjastofnunar Íslands, sem öll hafa varað við óafturkræfum verulegum neikvæðum áhrifum á menningarminjar, sögu og ásýnd svæðisins. Hvatinn að þessu skógræktarverkefni er mjög óskýr og óskiljanlegur, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingarnar verða að mati þeirra sem vilja varðveita Ólafsdal með náttúru staðarins, menningarminjar og sögu að leiðarljósi (sjá umsagnir fyrrnefndra aðila). VÍN er sammála þessum samtökum sem hafa varað við þessum framkvæmdum og mótmælt þeim og skilur ekki afstöðu Skipulagsstofnunar til málsins.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 26. apríl 2023
Eins og ykkur er kunnugt um hefur staðgengill skógræktarstjóra iðkað um áratuga skeið hatrammar ófaglegar ásakanir á hendur núverandi forsvarsmanna VÍN, Svein Runólfsson, Andrés Arnalds og Jón Gunnar Ottósson.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 14. apríl 2023
Vísað er til bréfs frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til Jóns Gunnars Ottóssonar varaformanns náttúruverndarfélagsins VÍN þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um Land og skóg, 858. mál.
Drög að framangreindu frumvarpi voru áður til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og veitti VÍN umsögn um drögin, sjá meðfylgjandi bréf dags. 31. janúar 2023.
VÍN fagnar framkomnu frumvarpi um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar og mælir eindregið með samþykkt þess. VÍN vill þó koma eftirfarandi ábendingum á framfæri, sem miða að því að styrkja frumvarpið.
Sjá alla umsögnina hér (PDF skjal)
Selfossi 14. apríl 2023
Á undanförnum misserum hafa verið sett fram stórtæk áform um að auka skógrækt hér á landi. Þessum áformum er það yfirleitt sameiginlegt að þau eru sett fram sem aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Fyrir liggur jafnvel áhugi og vilji erlendra aðila til að hefja stórfellda skógrækt hérlendis í þeim tilgangi. Með nútíma vélvæðingu við jarðvinnslu og plöntun er víða hægt að ná miklum afköstum í skógrækt. Með skógrækt er hægt að byggja upp kvóta sem verður
söluvara sem samsvarar því kolefni sem binst við ræktun skógarins. Fyrirtæki með neikvætt kolefnisspor virðast því geta keypt sér nokkurs konar aflátsbréf frá þeim aðilum sem hafa jákæða stöðu í því uppgjöri. Því er að mörgu að hyggja i þessum efnum fyrir sveitarstjórnir sem fara með skipulagsvald hver á sínu svæði.
Því verður ekki á móti mælt að skógrækt hefur margþáttuð áhrif á umhverfið. Vafalaust sýnist sitt hverjum hvort þau áhrif séu jákvæð eða neikvæð. Mikilvægt er að átta sig á að ræktun skóga …..
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 13. apríl 2023
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins (sbr. meðfylgjandi skrá yfir stofnfélaga). Félagið var formlega stofnað á sl. ári en hópurinn hefur starfað saman lengur. Hlekkur á vef félagsins er: https://natturuvinir.is/ Tilgangur félagsins er að fjalla um náttúruverndarmál líðandi stundar. Ísland er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um náttúruvernd, vernd líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúruauðlinda. Skyldur þjóðarinnar á þessu sviði eru margvíslegar, sem endurspeglast í íslenskri löggjöf. Starfsemi VÍN tekur mið af þessum alþjóðlegu skuldbindingum og íslenskri löggjöf um náttúruverndarmál í umfjöllun sinni. VÍN leggur áherslu á að veita aðgang að faglegu og vönduðu efni sem byggt er á vísindalegum grunni og kynna þau náttúruverndarmál sem efst eru á baugi hverju sinni.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Höfundur þessarar greinar í Bændablaðinu vill benda á og leiðrétta mistök sem honum urðu á við frágang greinarinnar. Stafafura er ekki sú tegund sem mest er ræktuð á Íslandi. Það er birkið. Hvað varðar meira efni um þessi mál á Nýja Sjálandi, sjá til dæmis vef Otago héraðs sem veitir ágætis yfirlit frá heildrænu sjónarmiði og vefinn Prevent the spread.
Aðalfundur félags vina íslenskrar náttúru, VÍN var haldinn í fjarfundabúnaði 21. febrúar sl. Fundurinn var vel sóttur af stofnfélögum en þeir eru 41 talsins. Sjá nánar hér
Selfossi 31 janúar 2023
Vísað er til máls. nr. 8/2023 í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpi til laga um Land og skóg. Með frumvarpinu er mælt fyrir um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar í nýrri stofnun undir heitinu Land og skógar.
Eftirfarandi umsögn er gerð í nafni nýstofnaðs félags um náttúruvernd ,,Vinir íslenskrar náttúru“ hér eftir VÍN, sjá nánar www.natturuvinir.is .
Sjá alla umsögnina hér (Samráðsgátt stjórnvalda)
Svar matvælaráðherra við fyrirspurn Orra Páls Jóhannssonar um kostnaðar- og ábatagreiningar vegna skógræktarverkefna (Sjá málsnúmer 422 á vef Alþingis)
Erindi Sigurðar H. Magnússonar á málþingi Hins íslenska nátturufræðifélags (HÍN) og Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) 30. nóvember um skógrækt, loftslagsmál og lífríki Íslands.
Orri Páll Jóhannsson þingmaður hefur lagt fram fyrirspurn til matvælaráðherra um kostnaðar- og ábatagreiningar vegna skógræktarverkefna. Sjáðu nánar málsnúmer 422 á vefsíðu Alþingis.
Glærur frá fundi fræðimanna og áhugafólks um náttúru Íslands með ráðherra matvælaráðuneytis.